Í þá nýju nyrðra ...

AlbumImageFáar ferðir á Eyri
flotinn nýrri þó.
Vantar ferðir fleiri
fyrir doksa & co.

Hinn nyrski & vel njótandi dr. Gylforce heldur senn í höfuðstað norðurlands, hvar hann mun taka hús á metanvögnunum sem & hinu óreiðukennda leiðakerfi Norðlendinga. Nema hvað.

44510891_696806990677193_6858080783274344448_nNorðlendingar hafa tekið í notkun þrjá sænskættaða metanvagna af Scania gerð aukinheldur sem þeir hafa fest fjár í einum Iveco Crossway. Afar vel gert Oddeyringar!

1Fyrr í vetur voru uppi hugmyndir um að bæta leiðakerfið nyrðra enda ekki vanþörf á. Vitaskuld kallar slíkt á aukið fjármagn & spunnust umræður í bæjarstjórninni um að hvort tími væri til kominn að hætta með fríar ferðir.

44471480_275907522911112_1049838101909733376_nLjóst er að bæta þarf leið sem fer að flugvellinum & í nýrri hverfi þeirra Norðlendinga. Það verður því spennandi að sjá á næstu misserum hvernig það verður leyst.

Mun aukið opinbert fé hrökkva til ellegar mun hefjast gjaldtaka á ný í hina norðlensku vagna???

Veit sá er ei spyr - spyr sá er ei veit.


Fundur með farþegum ...

fundurFyrir eymings farþega
flækjustig of hátt.
Breyta þarf bráðlega
svo breið myndist sátt.

Fundur með farþegum

17Hið bráðmyndarlega byggðasamlag Strætós efndi til fundar með farþegum á dögunum til þess að heyra raddir þeirra. Á sama tíma & hann fór fram sat dr. Gylforce sem fastast á dollunni & var því illu heilli vant við látinn. 

imagesÁ fundinum komu fram þarfar ábendingar frá vagnverjum. Ein af þeim laut að því hve flókið hið lostfagra leiðakerfi er fyrir nýja notendur. Þarna er dr.-inn að mörgu leyti sammála & hefir optsinnis minnst á það á þessum vettvangi.

178 aEitt af því sem skýra mætti fyrir nýjum notendum er að láta vagna t.d. á Hlemmi snúa í þá átt sem þeir eru að fara í. Opt & einatt er dr.-inn staddur við Hlemmtorgið & fær spurningar frá vinum sínum - verjunum - & skilja þeir sjaldnast t.d. að leið 1, 2, 3, & 6 séu á leið niður í bæ þegar þær líta út fyrir að vera að fara í þveröfuga átt.

Aukinheldur væri unaðslegt að fá tímatöflur sem sýna hve langt er í næsta vagn. 

Það væri unaður. Maður lifandi!





Sautján ára sæla ...

56917848_750595128674594_8861325221722849280_nGamli jálkur göslast enn
gæði hrein frá Svíum.
Vonandi þó vagninn senn
víki fyrir nýjum.

Dr. Gylforce hélt ótrauður á vit vagna í gær, hvar hann var óðara kominn að okkar Frónbúar Mekka, Hlemmtorgi. Nema hvað.

44471480_275907522911112_1049838101909733376_nDr.-inn gaut augum sínum að sænskættuðu stáli á leið 2 en vagnar frá fyrirmyndarríkinu virðast óðum týna tölunni hér á höfuðborgarsvæðinu. Illu heilli.

Copy_of_Straeto_mid (1)Á þessu ári hyggst byggðasamlagið Strætó festa kaup á metanvögnum. Vonandi verða þeir sænskættaðir en Norðlendingar hafa einmitt tekið þrjá slíka í notkun sem dr.-num líst afar vel. á. Svo vel raunar að í næstu viku vill hann óður taka hús á þeim. Hvað um það.

Dr. Gylforce gat eigi setið á sér & settist inn í þennan 17 ára gamla vagn á leið 2 & tók sér 50 mínútna rúnt frá Hlemmi að Mjódd okkar Breiðhyltinga í gegnum Grensás, Hamraborg, Smáralind & efri byggðir Kópavogs & leið þetta líkt & um 5 mínútur væri að ræða.

Unaður.


Gylforce & geithafur ...

Hinn eitilharði & upprennandi dr. Gylforce einhenti sér eitt sinn í eyðu einni í hverfaleið hér í Voginum, hvar hann náði hinni kynngimögnuðu leið 35.

015_1299349Dr.-inn beið vitaskuld eptir vagni sínum, hvar hann sá goðsögnina sjálfa í skýlinu. Takk fyrir túkall! Hr. Stefán Grímsson sat hinn spakasti & reykti stubba af áfergju. En ekki hvað???

Dr. Gylforce buktaði sig & beygði, bauð honum vitaskuld góðan dag & minntist bragsins fagra um þennan ljúfling:

Eptir vagni eitt sinn leit

einatt gestur tíður.
Í makindum Mr. geit
málaður, skeggsíður.

Dæmafár í doktors sveit
dedúar & bíður.
"Góðan dag" svaraði geit
við Gylforce-inn blíður.

Amen. Þvílík unaðsferð!


Dropinn holar ...

780-9f853a2cafDropinn holar harðan stein
hægt mun bílum fækka.
Í unaði á sér akrein
öll mun streita lækka.

Fleiri nýir vagnverjar

Vel á sjötta þúsund einstaklingar gjörðust nýir vagnverjar eða endurnýjuðu kynnin sín við unaðinn - vagnana - á gráum gærdegi. Maður lifandi.


svifrykDropinn holar steininn segir einhvers staðar & á það vel við í viðleitni Strætó bs. til þess að sporna við svifrykinu. 

Strætó áætlar að hver frír dagur í vögnunum kosti byggðasamlagið um þrjár milljónir króna sem er vitaskuld ekki há fjárhæð í stóra samhenginu.

Vonandi verður áframhald á fríum ferðum ef fleiri gráir dagar eru framundan.

Amen.




Betri loftgæði ...

Hér fær fólkið klappið
sem forðaðist bifreið.
Urmull sótti appið
upplifði vagn á leið.

Ókeypis í vagninn með appinu á gráum dögum

Það er engu líkara en að fólk hafi tekið vel í að nýta sér annan ferðamáta í dag en einkabílinn. Góðu heilli.

Loftgæði í Reykjavík reyndust betri en spár gerðu ráð fyrir. Hinsvegar má búast við fleiri gráum dögum í vikunni & því vert að hvetja alla - nær & fjær - til þess að ganga, hjóla ellegar notast við unaðinn - vagnana - til að komast ferða sinna í höfuðborginni.


Frítt í vagnana vegna svifryks ...!

svifrykMengunin af malbiki
mörkin alltof há.
Svífum um í svifryki
svakalegt að sjá!

Svifrykið svakalega

Á morgun er gert ráð fyrir svokölluðum "gráum degi" hvar svifryk er líklegt til þess að fara yfir heilsuverndarmörk. 

Strætó bs. er vitaskuld með puttann á púlsinum & býður upp á fríar ferðir með vinum vorum, vögnunum, þegar slikar aðstæður eru uppi.

Vel gert Strætó - fjölmennum í vagnana!


Barinn í biðskýli ...

download (1)Í biðskýli á Bústaðavegi
barinn í spað.
Átti sér stað á miðjum degi
á skrýtnum stað.

Barinn í biðskýli

Það bárust ekki boðleg tíðindi frá laganna vörðum í gær, hvar ráðist var að því virtist að tilefnislausu á vagnverja einn er beið bísperrtur eptir vagninum. Nema hvað.

downloadAumt er til þess að vita að verjar geti eigi verið óhultir meðan þeir bíða eptir unaðinum. Góðu heilli heyrir þetta athæfi til undantekninga & vonandi heyrir dr. Gylforce ei meir af málum af þessum toga.

Árásarmaður ófundinn
ekki finnst úr þessu.
Annarlegur & afundinn
ætti að kíkj´í messu!


Fundur með forkólfunum ...

41817485_236359937046717_4035798751632162816_nFokkaðist upp fundurinn
með forkólfum leiða
í djöfuls rugli doktorinn
dæmalaus bleyða!

Strætó hélt opinn fund á dögunum með hagsmunaaðilum sínum. Fundur sá var einkar vel til fundinn & sýnir að byggðasamlagið hyggst hlusta á ábendingar okkar vagnverja. Nema hvað.

Dr. Gylforce hapði vitaskuld hug á að mæta á fund þennan, var meira að segja á leið á fundarstaðinn við Þönglabakkann hvar honum varð brátt í brók & slapp hann með naumindum til síns heima.

Skelfing mig nú skók
úr skólanum mínum.
Varð svo brátt í brók
í bus-i fínum.


Gjarnir á gleymsku ...

strætóstjóriTítt í hraki tímans
taka þeir eitt "gleym".
Grípa gjarnan til símans
gerist of oft hjá þeim.

Gjarnir á gleymsku

Vagnverja einum tókst að nappa vagnstjóra í símanum. Þetta kemur fram á dv.is. Atvikið átti sér stað á leið 4 sem dr.-inn þekkir nú vel til. 

Vagnstjórinn tók beygju inn Austurberg hjá Hólabrekkuskóla & virðist hafa hugann við símann sinn í stað umferðarinnar. Illu heilli!

Dr. Gylforce hefir varla orðið var við að vagnstjórar séu mikið í símanum sínum en miðað við fréttir sem berast af & til er þetta eitthvað sem þeir verða að bæta.

Ímynd þeirra & áreiðanleiki er í húfi. Vagnstjórar, upp með sokkana, kippið þessu í liðinn. Þetta á vitaskuld ekki að sjást.

Yfir&út!


Mynd: dv.is



« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband