Bloggar | 30.7.2018 | 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn framsýni & fráleitt fallvalti dr. Gylforce fagnaði vel & innilega í sveitinni, hvar hann las um komu fimm nýrra rafvagna til landsins. Hipp-hipp-húrrrrrey!
Fimm nýir rafvagnar
Strætó bs. fjárfesti í 14 vögnum fyrir tæpan milljarð króna fyrir nokkru & eru þá komnir níu af þeim á klakann. Þessir hljóðlátu & huggulegu fákar hafa reynst vel & er frábær viðbót við flotann.
Það sem skortir ennþá hvað rafvagnana varðar, er hleðslustöð á eina tengistöðina til þess að vagnarnir geti keyrt frá morgni til kvölds aukinheldur sem taflan inn í vagninum fyrir oss verjana virkar ekki.
Þegar þessu tvennu hefir verið kippt í liðinn verður þetta bara unaður - fyrir oss & umhverfið.
Fimm nýir eru á næsta leiti
nálgast þeir leiðir brátt.
Orkan tæra er þeirra eldsneyti
algjörlega um þá sátt.
Bloggar | 29.7.2018 | 19:06 (breytt kl. 19:48) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við Lágafell ljúft það var
í lauginni að busla.
Eitt í skýlum sem afbakar
auðvelt var að rusla.
Hinn stjarfi & stórmannlegi dr. Gylforce stefndi litla vagnverjanum í ferðir til Mosfellinga, hvar þá langaði í laugar & ljúflegheit við Lágafellið. Nema hvað.
Feðgar einhentu sér í leið 4 við selið, skiptu yfir í tuttugu&fjegur í Mjódd okkar gettóinga & smelltu sér síðan inn í leið 15 við Ártúnið áleiðis til Mosfellinga.
Mosfellingar virðast léttleikandi & listhneigðir. Strætóskýlin eru afar litskrúðug hjá þeim & skemmtileg á að líta. Einn ljóður var þó á nokkrum; öngvar ruslafötur voru nálægt þeim & sá doksi kallinn rusl á víð & dreif í kringum þau. Þessu verða Mosfellingar að kippa í liðinn.
Ferðin sóttist hinsvegar vitaskuld vel hjá feðgunum enda fátt betra en að vera vagnverji í vagni - en ekki hvað???
Bloggar | 27.7.2018 | 00:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vagnverjinn er að veipa
villt í skýlinu sínu.
Gufunni grimmt út hleypa
geðvondur verð ég pínu.
Dr. Gylforce vill biðla til byggðasamlagins Strætós um að gera nú gagnskör í betri merkingum í biðskýlum okkar vagnverja.
Alltof opt situr verji einn (eða fleiri) í skýlinu & veipar villt & galið þegar Gylforce-inn ber að garði. Reykingar eru ekki leyfðar í biðskýlum bæjarins & þá (vonandi) ekki heldur notkun á rafrettum.
Það virðist þó vera eins & margir líti veipið öðrum augum heldur en vindlinginn. Öngvinn munur ætti að vera á þessu tvennu. Vonandi tekur Strætó bs. sig saman í andlitinu & kemur með merkingar strax nú á haustmánuðum.
Veip er reip - burt úr biðskýlunum með þetta!
Bloggar | 26.7.2018 | 00:03 (breytt kl. 00:03) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vagnverjinn opt í vagnafans
vagninn hingað kemur.
Allt er á leið til andskotans
ávallt þó staðar nemur.
Dr. Gylforce reis upp við dogg í morgun með tvö orð á heilanum; töluvert tölvugert. Ekki veit doksi hvers vegna enda beið hann öngvra boða & hélt á vit vagna. Nema hvað.
Frá Stútlautarseli dr.´s eru tvær leiðir i boði, hin þriðja & fjórða. Að þessu sinni hélt Gylforce-inn rakleitt í þristinn & kynntist yndislegum lendum okkar Breiðhyltinga; selum, fellum og hólum.
Á leið sinni varð doksa hugsað til tónleikagesta í gærkvöldi & vonaði svo innilega að vögnunum hafi tekist vel til að ferja mannskapinn úr Laugardalnum. Hvað um það.
Dr.-inn sýslaði í Mjóddinni dágóða stund en ákvað svo að fá sér annan langan & indælan rúnt. Dr. Gylforce fór því á fjörurnar við eðal Iveco Crossway vagn á leið 4.
Maður lifandi - hvar endar þessi unaður???
Bloggar | 25.7.2018 | 10:26 (breytt kl. 10:28) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vonandi sjá sem flestir rokkþyrstir sér fært að nota vagnana til að komast á stórtónleikana í Laugardalnum.
Strætó bs. býður upp á sérferðir til að ferja fólk á Laugardalsvöllinn. Farið verður frá Háskólanum í Reykjavík, Kringlunni og Mjóddinni og beint á völlinn. Fyrsta ferð er kl. 16:30 og lýkur svá þegar allir eru komnir í rokk & ról!
Epískur doksi ljóðar lýrik
líkt & sjálfur Móses.
Allir í Dalinn, ekkert hik
upplifa Guns N´ Roses.
Bloggar | 24.7.2018 | 10:54 (breytt kl. 12:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ekur austur Vesturbrún
& inn að Verzló.
Fer um teiga, dal & tún
tjúttar svo að sjó.
Hinn vægni & vægðarsami dr. Gylforce var eins & útspýtt hundskinn & út um allar trissur þennan annars ágæta dag tunglsins. Nema hvað.
Svá skemmtilega vildi til að opt & einatt var doksi kallinn eins & eilífur augnakarl í leið 14.
Leiðin sú er um margt merkileg. Með sjö strætisvögnum á annatíma fer hún frá Granda að Verzló í gegnum Háskólann, Gömlu-Hringbraut, Hlemm, um Túnin, framhjá teigum, um Laugardal & laug, Langholtsveg, að Grensás & inn að skóla þeirra Verzlinga. & vitaskuld sömu leið til baka. Hvað um það.
Að þessu sinni ók hin fjórtánda leið austur Vesturbrún í stað Austurbrúnar vegna framkvæmda aukinheldur sem til stendur að breyta leiðinni lítillega í kringum Háskólann í haust. Nema hvað.
Dr. Gylforce gerði sér far með leiðinni í þrígang & fékk hina hollensku VDL-vagna í öll skiptin enda afar sjaldgæft að sjá Iveco Crossway vagna á leið þessari.
Bloggar | 23.7.2018 | 15:45 (breytt kl. 15:47) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Til að stytta tíðina
tölti ég af stað.
Horf´á laut & hlíðina
& hugsa, nema hvað.
Í grámóðu hvíldardagsins hélt dr. Gylforce á vit vagna & vildi létta lund & kæta geð. Dr.-inn hélt af stað & gekk úr laut sinni, framhjá Seljahlíð & að næsta skýli þar i námunda.
Dr.-inn hapði hug á að komast að tengistöð vagnanna við Ártún. Doksi kallinn skellti sér því í leið 24 við Mjódd okkar Breiðhyltinga.
Tengistöðin Ártún er um margt orðin barns síns tima. Þarna stoppa margir vagnar & aðstaðan ekki beysin eins & myndir sýna. Vagnarnir verða að vera í rennu aukinheldur sem þrjár aðrar leiðir stoppa þar sem myndasmiðurinn smellti af.
Strætó bs. hefir rennt hýru auga til svæðis neðar í Ártúnsbrekkunni. Vonandi kemst það á einhvern rekspöl í náinni framtíð því vér vagnverjar eigum betra skilið en þetta.
Amen.
Bloggar | 22.7.2018 | 17:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég inn í téðan tölti
er tækin hleður strax.
Frá Hlemmi héðan brölti
í haustveðri þessa dags.
Hinn banga- & bögulegi dr. Gylforce brá sér af bæ í bleytunni & langaði að berja téða rafvagna augum. En ekki hvað???
Dr.-inn fékk venju samkvæmt Iveco Crossway vagn á leið 4 við Stútulautarselið sitt. Þar virðast fastir á leið vagnar með vinnunúmerin 172-175 sem er bara vel. Doksa kallinum bauð í grun að ef einhverjir rafvagnar væru á vígvöllum veganna helgi þessa væri best að líta við á Hlemmtorgi. Nema hvað.
Dr. Gylforce sá aðeins einn téðan á Hlemminum, 194 vagninn á leið 2. Aukinheldur var ljóst að um langdvöl & þrásetu var í vændum í tvisti þessum.
Doksi birgði sig upp af löðrandi sveittu Maxi & fékk huggulegan rúnt í hljóðlátum vagni í 45 mínútur frá Hlemmi, um Grensás, suður í Voginn fagra, um efri byggðir hans & að lúkningu niður í sjálfa Mjóddina.
Meira svona takk!
Bloggar | 21.7.2018 | 20:05 (breytt kl. 20:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn þýðlyndi & þægilegi dr. Gylforce hefir kvatt - illu heilli - hinn yndislega Íberuskaga & er sestur niður í suddanum; heldur reynast þau skref trauð & tregleg. Hvað um það.
Það færi betur á því að ferðast með þeim bláu á Benidorm & liggja flatmaga á hinni flennistóru sjávarsíðu þeirra Íberinga, heldur en að lenda í karpi & kýtingi um fullveldishátíðarfokk á Þingvöllum eða hinni löngu & leiðigjörnu ljósmæðrakjaradeilu. Nema hvað.
Kynntist Íberíu ættflokk
öl & stanslaust partí.
Í fullveldishátíðarfokk
of fljótt kem heim í.
Annars var leið 3 tesa vagnverjanna tveggja. Hún stoppaði beint fyrir utan hótel þeirra & hapði 15 mínútna tíðni.
Aðrar leiðir gátu komið á klukkutímafresti sem er nú ekki til útflutnings. Maður lifandi.
Hvað um það. Nú er kominn tími til að halda á vit vagna á Fróni í vætunni.
Yfir&út!
Bloggar | 21.7.2018 | 11:16 (breytt kl. 14:54) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.5.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 118900
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar