Af stað er hrint hinsegin
með hátíðarvagni.
Í göngunni ég öreiginn
arka mun með lagni.
Gleðirendur, prjál & glys
glingur í miklu magni.
Um alla borg ys & þys;
endum fjör í vagni.
Hinsegin dagar eru hafnir í henni Reykjavík & góðu heilli tekur Strætó bs. fullan þátt í þeim í þriðja sinn. En ekki hvað???
Strætó hefir skreytt fallega 107 rafvagninn & vonandi sést hann á sem flestum leiðum næstu daga. Nema hvað.
Margt & mikið verður um að vera á Hinsegin dögum og munu þessir dýrðardagar ná hámarki með gleðigöngunni margrómuðu hinn 17. ágúst næstkomandi.
Vonandi njóta vagnverjar allra litbrigða lífsins meðal vagna & fjölbreytileikanum megi þeir hvarvetna í hvívetna fagna.
Amen.
(næst efsta mynd: dv.is, hinar: straeto.is)
Samgöngur | 10.8.2019 | 00:04 (breytt kl. 00:11) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Einn & yfirgefinn
ætl´um borg & bý.
Hverfur allur efinn
er ég sit þeim í.
Malbikun við Mathöll á miðvikudegi
Vonandi gekk vagnverjum vel að komast leiðar sinnar við Hlemm & Mathöll hvar malbikun á Snorrabraut milli Laugavegs og Hverfisgötu kann að hafa sett strik í reikninginn þennan annars fagra miðvikudag. Nema hvað.
Illu heilli átti dr. Gylforce ekki heimangengt við Hlemmtorgið að þessu sinni til þess að sjá hvurning gekk. Á morgun er svá gert ráð fyrir því að allt detti í ljúfa löð & vagnar verði á réttu róli & vappi.
Yfir&út!
Samgöngur | 7.8.2019 | 20:59 (breytt 10.8.2019 kl. 00:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sá bláguli nú bíður þín
brunar út í Eyjar
í vindlinga & hellings vín
& villtar meyjar.
Sá bláguli siglir
Dr. Gylforce vonar að vagnverjar nýti sér aukaferðirnar með þeim blágula á leið 52 ef þeir hyggja á hina stórskemmtilegu Þjóðhátíð í Eyjum um verslunarmannahelgina.
Góða skemmtun!
Samgöngur | 2.8.2019 | 14:00 (breytt kl. 14:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sá guli okkur sparar spöl
spóka ég mig í vagni.
Sit í honum ef indælis öl
ég teyg´í miklu magni.
Hinn fyrrum rauðbirkni & ratvísi dr. Gylforce hefir ráð undir rifi hverju & rjátlaðist loxins á vit vagna. Nema hvað.
Rafvagnar voru fyrirferðarmiklir á kvöldvachtinni. Það gladdi hið gamla hró dr.´s að sjá alla fjóra vagnana á fjarkanum vera hljóðláta & umhverfisvæna. En ekki hvað???
Þetta þýddi urmul af þrásetum í þessum geðþekku rafvögnum sem ættaðir eru frá kommúnistunum í Austri & voru ferðir þessar hvorki þurrtruntulegar né þungsóttar, heldur uppfullar af andagift & unaði. Hvað um það.
Það var ákaflega gott að komast á ný á vit vagna & mun dr. Gylforce efalítið verða sem eilífur augnakarl í vinum vorum á morgun.
Góðar stundir - í vögnunum.
Amen.
Samgöngur | 1.8.2019 | 23:48 (breytt kl. 23:49) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar