Frá morgni til miðnættis
munu keyra brátt.
Leiðir ei til ósættis
einvörðungu sátt.
Hinn vel þenkjandi & þroskaði dr. Gylforce hefir í pásu sinni hvorki verið haldinn þurrafúa né þröngsýni, hvar hann hefir aukinheldur brugðið sér vitaskuld á vit rafvagna, en ekki hvað???
Strætó bs. hefir nú 14 rafvagna til umráða, framleidda í Austurvegi & virðast fyrirtaks eintök. Þeir eru þó aðeins hastari heldur en hinu glæstu & glæsilegu Iveco Crossway vagnarnir en vitneskjan varðandi rafvagnana um hundrað prósent rafmagn & núll prósent útblástur vinnur það fljótt upp. Maður lifandi.
Einn er þó hængur á; öngvar hleðslustöðvar eru sjáanlegar fyrir vagnana á tengistöðvum Strætós & er ekki annað að sjá en að byggðasamlagið skipti rafvögnunum út um fjögur leytið á daginn & bruni með þá upp á Hestháls til hleðslu. Má því í raun segja að aðeins sjö vagna séu í fullri notkun þessa dagana.
Þessu þarf að breyta; hleðslustöð á Hlemminn. Strax! Pronto! Schnell!
Bloggar | 4.1.2019 | 18:26 (breytt 8.1.2019 kl. 21:12) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hækkar sól eptir bænahald
& hækkar í vagna verð.
Er enn gjöf en ekki gjald
í ógleymanlegri ferð.
Unaðurinn hækkar & vex
Gleðilegt ár mínir virðulegu vagnverjar! Dr. Gylforce hefir hvílt sín eigin dekk & drif undanfarna daga en hyggst nú gjörast drátthagur á nýju ári - en ekki hvað???
Nokkrar breytingar bíða oss vagnverja um helgina á hinu lostfagra leiðakerfi Strætó bs. Enn fleiri verða svo í byrjun næsta mánaðar þegar lokað verður hluta af Gömlu-Hringbraut aukinheldur sem örlítil hækkun verður í unaðinn. Maður lifandi!
& nú skal senn haldið á vit vagna. Meira síðar.
Bloggar | 2.1.2019 | 15:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.5.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 118906
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar