Í hvíldinni í fyrstu ferð
fékk ég kínverskt rafmagn.
Hljóðlát var ferðin & fíngerð
með fyrirmyndar rafvagn.
Hinn þjóðlegi en þó þumbaralegi dr. Gylforce þaut af stað í fyrstu ferð síðastliðinn hvíldardag, hvar doksi kallinn hóaði í leið 4 við selið sitt. Nema hvað.
Fyrsta ferð á sunnudögum hepst ekki fyrr en kl. 9:33 hvar leið 4 ekur frá Fellaskóla í átt að gettói Gylforce-ins. Gott væri ef vagnarnir hæfu akstur fyrr á sunnudögum en nú berast váleg tíðindi frá Strætó þess efnis að unaðurinn hætti að keyra klukkutíma fyrr en venjulega í sumar!!!
Að þessu sinni var ferð dr.´s stutt með þessum rafmögnuðu vinum úr Austri en það gladdi hið gamla hró doksa mikið að fá rafvagn í fyrstu ferð á þessum heilaga hvíldardegi.
Yfir&út!
Samgöngur | 14.5.2019 | 09:53 (breytt kl. 10:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er alltaf ánægjulegt þegar fleiri kjósa að hoppa á vagninn hvað almenningssamgöngur varðar. Fyrir stuttu reit ritstjóri Fréttablaðsins góðan leiðara hvar hann hvatti t.d. forstjóra til þess að gefa einkabílstjóra sínum frí & einhenda sér í unaðinn & prófa að taka vagnana. Vel gert!
Maður á nú samt eptir að sjá það gerast - maður lifandi!
Byrjun Borgarlínu
Þá hefir borgarráð gefið borgarstjóra umboð til þess að undirrita samninga tvo & hrinda Borgarlínunni þar með úr vör. Nema hvað.
Ef allt fer að óskum skal hafist handa við fyrsta áfanga línunnar í upphafi ársins 2021.
Sá hluti sem varð fyrir valinu er línan frá Hamraborg, vestur um Kársnes, yfir fyrirhugaða Fossvogsbrú & áleiðis niður í miðbæ aukinheldur sem lögð verður lína þaðan að Ártúnsbrekku.
Spennandi, spennandi - en ekki hvað???
Víst er manna misjöfn dyggð
metið úr ýmsum gögnum.
Ég hef mína trú og tryggð
er tengist unaðsvögnum.
Samgöngur | 13.5.2019 | 18:34 (breytt kl. 18:47) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kamba keyrðum niður
komum í blómabæ.
Fastur, ljúfur liður
leið á honum ei fæ.
Hinn létti & netti dr. Gylforce hélt með ungviðið í strætóvalinu í sína árlegu ferð austur fyrir fjall í sérdeilis fallegu en svölu veðri í gær, frjádag. Nema hvað.
Það ku vera þriggja vagna rúntur að skella sér frá mennta- & menningarsetrinu við Kársnes að Shellskálanum í Hveragerði. Til þess að komast í Hamraborgina háu & fögru fengum við okkur til fulltingis leið 36. Frá Voginum fagra í átt að Breiðhyltingum einhentum við okkur í leið 4 & svá lox var það leið 51 til þess að komast austur fyrir fjall.
Ferðin gekk snurðulaust & því ljóst að öngvin snurða hljóp á þráð okkar Kársnesinga. Áttum við saman unaðsstund eystra aukinheldur sem 408 bláguli vagninn á leið 51 var magnaður.
Yfir&út!
Samgöngur | 11.5.2019 | 16:27 (breytt 13.5.2019 kl. 18:54) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er ekki fallegt að birta myndir af fólki án leyfis. Hinsvegar getur dr. Gylforce vart annað eptir að hafa setið í leið 4 með þessari fallegu & friðsælu vagnverju.
Hún kom inn, tyllti sér tignarlega niður & hvíldi sig; upplifði unaðinn & vellíðan vagnverjans.
Vel gert!
Í huggulegri hlýju
hávaði afstaðinn.
Kemur & fær sér kríu
kannar unaðinn.
Amen.
Samgöngur | 10.5.2019 | 17:28 (breytt kl. 17:35) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Situr sæla huga í,
er sest ég niður.
Vagninn verður æ & sí
vé mitt & friður.
Hinn helgi & fráleitt heimóttarlegi dr. Gylforce hélt loxins á leið í blíðu gærdagsins, hvar hann hitti fyrir urmul af vinum sínum, vögnunum. Nema hvað.
Dr. Gylforce hélt hnarreistur inn í fyrstu leið sem hann sá. & viti menn, var það leið 2 & tók hann góðan rúnt um efri byggðir í Voginum fagra. En ekki hvað???
Dr.-inn sat þó mestan part í leið 11 síðdegis í gær. Enn & aptur var gaman að fylgjast með hve vel vagninn var nýttur af oss vagnverjum þótt nú myndin af skanka doksa karlsins sýni nú annað!
& ekki varð unaðurinn minni hvar dr.-inn vildi leita aptur heim í Stútulautarselið sitt hvar hann hóaði í sneisafulla leið 3 - & fékk Irisbus Citelis sér til fulltingis - & tók um 40 mínútna unaðsrúnt með leið þessari frá Hlemmi að seli sínu.
Unaður.
Bloggar | 10.5.2019 | 12:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gylforce-inn er mjög glaður
gengur um í fínu.
Ársskýrslan er unaður
upp í rúmi mínu.
Ársskýrslan unaðslega
Aðalfundur byggðasamlagsins var haldinn í vikunni, hvar dr. Gylforce var vant við látinn við uppfræðslu ungmennanna vestur á Kársnesi. Nema hvað.
Ársskýrsla Strætós verður því að duga að þessu sinni enda um margt hið merkilegasta plagg. Maður lifandi!
Dr. Gylforce hefir áhuga á vögnunum & er umhugað um að vér vagnverjar fáum nýlega, umhverfisvæna & þægilega vagna á vígvelli veganna. En ekki hvað???
Það er því fagnaðarefni að í lok þessa árs er stefnt að fimm nýjum vetnisvögnum. Fyrir á fleti eru 14 rafvagnar ættaðir úr Austurvegi & tveir gamlir Scania metanvagnar. Það er aukinheldur ánægjulegt að sjá forsvarsmenn byggðasamlagsins vera áfjáða um að fjölga umhverfisvænum vögnum þótt ýmis tilstand kann að fylgja slíkum ákvörðunum.
Þá hefir verið í umræðunni að Strætó endurnýi & fjölgi metanvögnum sínum. Töluverður kostnaður kann að hljótast að því að fá fleiri metanvagna hvar lögnin fyrir metangasið er staðsett í nokkurri fjarlægð frá höfuðstöðvum vagnanna við Hestháls.
Hvað um það. Dr.-inn hlakkar mikið til vetnisvagnanna & vonar að tímasetningar standist & við sjáum þá á vígvöllum veganna á þessu ári.
Samgöngur | 9.5.2019 | 12:54 (breytt kl. 13:00) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lítt í vögnum verið
virkilega sárt.
Eru samt akkerið
það er alveg klárt!
Hinn skarpsýni & skýri dr. Gylforce hefir ekki siglt á sælum sel hvað vagna varðar, hvar alltof margir dagar hafa liðið frá síðustu vagnarannsóknum doktorsins. Illu heilli! Hva e a sge???
Gylforce-inn þarf að gera bragarbót á þessu - maður lifandi.
Þetta er hneisa, háðung, & hneyksli; sneypa & smán. Punktur.
Samgöngur | 2.5.2019 | 17:32 (breytt kl. 17:34) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Uppbygging borgarlínu
Hepst nú ferlið formlega
í fyrstu þessu kveið.
Verkefnið met´& vega
velja fyrstu leið.
Í ár hefst formleg uppbygging á Borgarlínunni svokölluðu sem gerbreyta mun almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu.
Þótt framkvæmdin sé umdeild - enda afar dýr framkvæmd & ekki alveg fyrirséð hvernig íbúar munu taka Borgarlínunni - er ljóst að drastískra aðgerða er þörf í umferðinni - & þótt fyrr hepði verið. Um það eru allir sammála.
Auk Borgarlínu er í deiglunni töluverðar vega- og göngustígaframkvæmdir sem er líka mikilvægt en fram til ársins 2030 gera spár ráð fyrir um 40% aukningu á heildarakstri á höfuðborgarsvæðinu, & um 24% miðað við breyttar ferðavenjur (fleiri ferðir með almenningssamgöngum, hjólandi og gangandi). Maður lifandi!
Líklegt má teljast að í 1. áfanga af Borgarlínu verði hafist handa við línur frá Hafnarfirði að miðbænum & annaðhvort frá Grafarvogi eða Mosfellsbæ áleiðis niður í bæ. Línur þessar hafa fengið merkinguna A & B & eru í dag meðal fjölförnustu leiða í leiðakerfi Strætós.
Aukinheldur hefir Strætó bs. hrint af stað vinnu við að aðlaga hið lostfagra leiðakerfi vagnanna að Borgarlínunni enda meikar það lítinn sens að hafa t.d. leiðir 1 & 6, sem aka frá Firði & Grafravogi í miðbæinn, í núverandi mynd þegar línan hefur göngu sína.
Enn & aptur; það eru því afar spennandi tímar framundan!
Samgöngur | 1.5.2019 | 08:41 (breytt kl. 14:00) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.5.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 118942
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar